GlobeNewswire

Ásar hf. – Uppgjör 3. ársfjórðungs 2026 verður birt eftir lokun markaðar 27. október 2026

GlobeNewswire

October 20, 2026 09:46 ET  | Source: Ásar hf.

Ásar hf. munu birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2026 eftir lokun markaðar þriðjudaginn 27. október næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. október í húsnæði félagsins að Ármúla 25, Reykjavík, og hefst hann kl. 8:30. Fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningarefni verður aðgengilegt á vef Ása og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi á www.asar.is/fjarfestar/fjarfestakynning. Hægt er að senda spurningar fyrir fundinn á netfangið [email protected] og verður þeim svarað í lok fundar.