GlobeNewswire

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 37

GlobeNewswire

September 14, 2026 05:00 ET  | Source: Skagi hf

Í 37. viku 2026 keypti Skagi 372.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 6.767.100 eins og hér segir:

VikaDagsTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
Vika 378.9.202615:22 90.000 18,50 1.665.000 80.160.000
Vika 379.9.202610:00 93.000 18,40 1.711.200 80.253.000
Vika 3710.9.202610:00 89.000 18,10 1.610.900 80.342.000
Vika 3711.9.202615:17 100.000 17,80 1.780.000 80.442.000
Samtals  372.000 6.767.100 


Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 20. júlí, sbr. tilkynningu á markað 17. júlí 2026. Áætlað er að kaupa allt að 25 milljón eigin hluti sem jafngildir um 1,29% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 350 milljónir króna að kaupverði. Endurkaup munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en við lokun markaða 15. september 2026.

Skagi hefur nú keypt samtals 7.949.036 eigin hluti í félaginu að kaupverði kr. 149.475.738 og á nú samtals 80.442.000 eigin hluti eða 4,15% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.940.311.770.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.

Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á [email protected]