GlobeNewswire

Lyfjastofnun Bandaríkjanna samþykkir nýja framleiðsluaðferð Alvotech sem rúmlega tvöfaldar afköst við framleiðslu á Simlandi

GlobeNewswire

October 20, 2026 04:30 ET  | Source: Alvotech

REYKJAVÍK (20. október 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefði samþykkt nýja aðferð við framleiðslu á Simlandi, hliðstæðu Alvotech við líftæknilyfið Humira.

Nýja aðferðin tvöfaldar magn virka lyfjaefnisins í hverri framleiðslulotu. Alvotech fékk samþykki FDA fyrr í mánuðinum á nýrri framleiðslueiningu í Vatnsmýri sem einnig eykur framleiðsluafköst fyrirtækisins til muna.

„Að ná að tvöfalda framleiðslu á virka lyfjaefninu ber skýran vott um færni og þekkingu starfsfólks okkar í lyfjaþróun og -framleiðslu,“ sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Alvotech. „Þar sem rúmlega helmingi færri lotur þarf til að framleiða sama magn af Simlandi losnar um framleiðslugetu sem nýta má til að framleiða aðrar hliðstæður úr vaxandi lyfjasafni félagsins. Eins og nýlegt samþykki FDA fyrir nýrri framleiðslueiningu í Reykjavík er þessi áfangi til merkis um góðan árangur í uppbyggingu á framleiðslugetu félagsins og eflir getu okkar til að tryggja samstarfsaðilunum öruggt framboð af hliðstæðum með vaxandi eftirspurn.“

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech framleiðir og markaðssetur fimm líftæknilyfjahliðstæður, hliðstæðu við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Eylea (aflibercept), Simponi (golimumab) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur félagið að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem meðal annars geta nýst sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
[email protected]