GlobeNewswire

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

GlobeNewswire

October 19, 2026 16:36 ET  | Source: Kvika banki hf.

Í viku 42 keypti Kvika  17.600.000 eigin hluti að kaupverði 215.845.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð  Kaupverð 
12.10.2026 14:49:38             4.800.000      12,35          59.280.000      
13.10.2026 14:20:11             4.900.000      12,2          59.780.000      
14.10.2026 09:33:02             2.000.000      12,15          24.300.000      
14.10.2026 12:54:02                 900.000      12,15          10.935.000      
16.10.2026 10:38:45             2.000.000      12,25          24.500.000      
16.10.2026 14:13:56             3.000.000      12,35          37.050.000      
Samtals  17.600.000  215.845.000 

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. september 2026 og er gerð í samræmi við heimild aðalfundar Kviku þann 18. mars 2026.  

Kvika hefur nú keypt samtals 55.395.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,279% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 681.787.875. kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 97.131.460 hlutir eða sem nemur 2,243% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.540.550.041 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 165.500.003.  

Endurkaupaáætlunin er í gildi þar til endurkaupum að kaupvirði 1.540.550.041 kr. er lokið eða 165.500.003 hlutir hafa verið keyptir, hvort sem gerist fyrr, en þó aldrei lengur en til 30. apríl 2027. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021. 

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu [email protected]