GlobeNewswire

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og leiðrétting á fyrri tilkynningu um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar.

GlobeNewswire

Leiðrétting: Vísað er til tilkynningar Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) frá  11. september 2026 um niðurfellingu gildandi endurkaupaáætlunar og framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar. Kvika leiðréttir hér með upplýsingar sem birtar voru í tilkynningu bankans frá 11. september 2026 um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar. Við yfirferð gagna kom í ljós að kaup á 1.000.000 eigin hlutum að kaupverði 13.250.000 kr., voru ekki birt í reglubundinni upplýsingagjöf um framkvæmd fyrri endurkaupaáætlunar bankans. Að teknu tilliti til leiðréttingarinnar keypti bankinn því samtals 34.499.997 eigin hluti samkvæmt þeirri áætlun og nam heildarkaupverð þeirra því 459.449.959 kr. Nemur eftirstandandi heimild samkvæmt nýju endurkaupaáætluninni þar af leiðandi 1.540.550.041 kr. að kaupvirði í stað 1.553.800.041 kr. sem áður var tilkynnt um eða að hámarki 165.500.003 hlutir í stað 166.500.003.