GlobeNewswire

Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 14. október 2026

GlobeNewswire

October 14, 2026 13:28 ET  | Source: Fossar fjárfestingarbanki hf

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki FOS 28 1 sem gefinn er út undir 15.000.000.000 útgáfuramma bankans. 

FOS 28 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk vaxtaálags með lokagjalddaga þann 27. október 2028.

Alls bárust bankanum tilboð fyrir 1.620 m.kr. að nafnvirði með álag á bilinu 1,55%-1,90% á eins mánaða REIBOR vexti. Tilboðum að fjárhæð 1.380 m.kr. að nafnvirði var tekið á 1,70% álagi. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að endurkaup á FOS 281026 nema 520 m.kr. að nafnverði af samþykktum tilboðum.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og fyrirhugaðri töku þeirra til viðskipta á markaði. Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna miðvikudaginn 21. október 2026.

Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og umsókn um töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar.