GlobeNewswire

Festi hf.: Birting uppgjörs 3F 2026 þann 28. október 2026 og afkomufundur þann 29. október

GlobeNewswire

October 21, 2026 05:01 ET  | Source: Festi hf.

Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3F 2026 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. október næstkomandi.

Afkomufundur með markaðsaðilum 29. október kl. 8:30.

Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 29. október 2026 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.

Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-3f-2026. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.